|
Leikfélagið Hallvarður súgandi
 |
Leikfélagið Hallvarður súgandi ber nafn sitt af landnámsmanninum, Hallvarði súganda, sem fyrstur kom í Súgandafjörðinn og gaf honum nafn. Leikfélagið var stofnað árið 1982 en hafði fyrir þann tíma starfað innan íþróttafélagsins Stefnis á Suðureyri. Árið 1989 lagðist starfsemi félagsins niður og var ekki virkt þar til það var endurvakið árið 1998 af áhugasömu fólki um leiklist. Félagið hefur, síðan þá, sett upp hverja sýninguna á fætur annarri og hefur ekki í hyggju að slá slöku við. Félagið hyggst stuðla að því að virkja menningu og mannlegar listir í Súgandafirði.
Leikfélagið Hallvarður súgandi hefur markað sér þá stefnu að setja upp að minnsta kosti eitt leikverk á ári. Þessi verk hafa verið sýnd á ?Sæluhelginni? sem haldin er á hverju sumri. Hefð er komin á Sæluhelgina, sem er flestum Vestfirðingum (amk.) að góðu kunn, og markast upphaf hennar yfirleitt af frumsýningu leikfélagsins hverju sinni, sem yfirleitt fer fram annan fimmtudag júlímánaðar - því er um langa helgi að ræða.
|
 |
9. september 2003 - Höfundur : Fiffi - © Leikfélagið Hallvarður súgandi
|