Leikfélagið Hallvarður súgandi Fréttir Meðlimir Leikrit Gestabókin Sýningar og miðapantanir

Stjórn
Leikarar
Leikstjórar
Höfundar
Hjálparkokkar
Tæknimenn
Allir
Meðlimir

Það er kannski ekki rétt að kalla þennan hluta vefsins okkar "Meðlimi", því í Leikfélaginu Hallvarði súganda eru engir skráðir meðlimir og engin föst meðlimaskrá. Hérna er hins vegar listi yfir flestalla þá sem hafa komið að uppsetningu leikrita hjá okkur með beinum eða óbeinum hætti. Leikararnir okkar, utanaðkomandi leikstjórar, hinir og þessir mislifandi höfundar, ljósamenn, sviðstjórar, sætavísur og sjoppustelpur. Án þessa fólks og þeirra vinnu gætum við ekki sett upp sýningarnar okkar og því listum við það allt hér upp.

Smelltu á einhvern flokk hérna til vinstri til að sjá meðlimi flokkaða eftir því hvað þeir gerðu hjá eða fyrir okkur eða smelltu á "Allir" til að sjá heildarlistann.

Það skal hinsvegar tekið fram að upplýsingarnar sem hér eru gætu verið rangar að einhverju leyti og hafa oft verið settar upp í litlu samráði við viðkomandi. Ef þú veist til þess að einhverjar upplýsingar hér séu rangar eða þér finnst vanta einhvern einstakling eða veist til þess að einhver einstaklingur vill ekki að hér séu birtar upplýsingar um sig, hikaðu þá ekki við að senda okkur póst á leikhus@its.is og við kippum því í liðinn við fyrsta tækifæri. :o)


22. október 2001   -   Höfundur : Sólveig   -   © Leikfélagið Hallvarður súgandi