Leikfélagið Hallvarður súgandi Fréttir Meðlimir Leikrit Gestabókin Sýningar og miðapantanir

Fréttir

Unnar | 9. júlí 2008
Galdrakarlinn á Súganda
Á Sæluhelgi á Suðureyri verður sýnd heimildarmyndin Galdrakarlinn á Súganda. Myndin var tekin upp á æfingum og í undirbúning Leikfélagsins Hallvarðs súganda á leikritinu Galdrakarlinn í Oz sumarið 2007. Tvær sýningar verða á myndinni og verða þær á föstudag og laugardag klukkan 16:00 í sal Fiskvinnslunnar Íslandssögu á Suðureyri.


Unnar | 29. október 2007
Engin leiksýning sumarið 2008!
Aðalfundur var haldinn hjá Leikfélaginu Hallvarði súganda laugardaginn 27. október sl. Aðeins stjórn félagsins mætti á fundin en tekið skal fram að fundur telst löglegur ef löglega sé til hans boðað. Farið var yfir stöðu mála félagsins og framtíðin rædd. Ákveðið stjórn félagsins að taka sér leyfi frá stöfum til næsta aðalfundar og því setur félagið ekki upp leiksýningu á næsta leikári.


Unnar | 2. júlí 2007
Galdrakarlinn í Oz
Leikfélagið Hallvarður súgandi er nú á fullu að æfa leikritið Galdrakarlinn í Oz og ganga æfingar vel. Fjöldi fólks tekur þátt í sýningunni og flestir þeirra börn.
Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson og starfaði hann einnig með félagin síðasta sumar.


Unnar | 8. október 2006
Áhugaleikfélögin undir hnífin.

Eftirfarandu frétt byrtist á vef Bandalags Íslenskra leikfélaga á dögunum. Leikfélagið Hallvarður Súgandi er að sjálfsögðu á móti þessum tillögum enda mættu styrkir frá ríkinu ekki minni vera.


Unnar | 13. júlí 2006
Vegleg gjöf frá Klofningi ehf.

Matvælaverksmiðjan Klofningur ehf á Suðureyri gaf Leikfélaginu Hallvarði Súganda veglega gjöf nú á dögunum. Félaginu var gefið andvirði 10 poka af þurkuðum þorskhausum eða um það bil 75.000.- var þetta tilkynnt á frumsýningu á leikritinin Himnaríki sem var núna 6. júlí síðastliðinn. Félagið vill þakka Klofningi ehf fyrir þessa rausnarlegu gjöf.


Unnar | 11. júlí 2006
Morgunblaðið flokkar menningu eftir staðsetingu hennar.

Síðan árið 2002 hefur morgunblaðið fjallað um sýningar hjá Leikfélaginu Hallvarði Súganda og sent gagnrýnanda á svæðið. Nú hefur orðið breyting á. Félagið hefur ekki fengið umfjöllun né gagnrýnanda á svæðið.


Unnar | 11. júlí 2006
Aukasýning!

Vegna fjöla áskoranna hefur verið ákveðið að hafa aukasýningu miðvikudaginn 12 júlí.


Unnar | 29. júní 2006
Leikfélagið Hallvarður sýnir Himnaríki -geðklofinn gamanleikur

Mynd frá æfingu
Fimmtudaginn 6. júlí næstkomandi frumsýnir Leikfélagið Hallvarður Súgandi leikritið Himnaríki -geðklofinn gamanleikur eftir Árna Ibsen. Í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar.


Unnar | 23. maí 2006
Æfingar hefjast 25. maí

Rúnar Guðbrandsson
Leikfélagið Hallvarður súgandi hefur á næstunni æfingar á leikritinu Himnaríki ? geðklofin gamanleikur eftir Árna Ibsen. Leikstjórn verður í höndum Rúnars Guðbrandssonar sem leikstýrt hefur fjölda leiksýninga bæði hérlendis og erlendis. Hann starfaði sem leikari um árabil, m.a. í Danmörku og Póllandi. Hann er með MA og M.Phil.


Erna | 9. maí 2006
Leikstjóri ráðinn fyrir sumarið 2006

Formaðurinn í góðum gír
Jæja gott fólk, þá hefur verið ráðinn til starfa leikstjóri til okkar og gleður það okkur mjög að Rúnar Guðbrandsson mun heiðra okkur með nærveru sinni í sumar. Við munum setja upp gamanleikritið Himnaríki eftir Árna Ibsen og nú mun hefjast leit að leikurum í hlutverk á aldrinum 20-40 ára.


Erna | 24. janúar 2006
Námskeið fyrir unga Súgfirðinga í leiklist!

Leiklistarnámskeið fyrir grunnskólanemendur á Suðureyri.
Tveggja helga námskeið haldið dagana 28. - 29. jan og 4. og 5.febrúar. Kennt verður 80. mín hverju sinni.
Hópar: Allir fá að vera með sem vilja og verður skipt í tvo hópa;    1 - 5 bekk annars vegar og hinsvegar 6. - 10. bekk.
Stutt lýsing á námskeiði:


Jóhanna | 10. júlí 2005
Aukasýnig- Lokasýning

Rássálfarnir
Góð aðsókn hefur verið á leiksýningu okkar Ronja Ræningjadóttir, vegna þess hefur verið ákveðið að halda aukasýningu þriðjudaginn 12. júlí kl 20.

Hægt er að panta miða hér á vefnum eða í síma 661-9179.


Jóhanna | 6. júlí 2005
Frumsýning-Uppselt

ræningjarnir
Nú um þessar mundir er leikfélagið Hallvarður súgandi að fara að setja upp
leikritið Ronja Ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Elfars
Loga Hannessonar.
Æfingar hófust í lok maí, og ganga þær framar vonum.


Unnar | 21. júní 2005
Æfingar í fullum gangi.

Ronja Ræningjadóttir
Nú standa yfir æfingar á barnaleikritinu Ronja ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren og sér Elfar Logi Hannesson um leikstjórnina. Hátt í 30 manns á öllum aldri koma að sýningunni, en flestir eru þó ungir að árum. Munu frumsýning verða 7. júlí næstkomandi. Sýningar verða í Félagsheimili Súgfirðinga, sem hefur verið aðal sýningastaður félagsins síðastliðin 26 ár.


Unnar | 27. júní 2004
Fjölskyldudagur.
Leikfélagið hafði sérstakan fjölskyldudag í dag 27. júní. Farið var yfir á Norðureyri og sá Björgunarsveitn Björg um að ferja fólkið yfir. Á svæðinu voru þeir sem eru að vinna að sýningunni N.Ö.R.D. og fjölskyldur þeirra. Á Norðureyri tóku gestirnir sig til; syntu í sjónum, grilluðu og fóru í leiki. Vel viðraði og var glampandi sól og um 20°C


Unnar | 6. júní 2004
Æfingar í fullum gangi.

Leikhópurinn ásamt leikstjóra
Þessa dagana standa yfir æfingar á leikritinu N.Ö.R.D. eftir Larry Shue í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar. Leikritið segir frá arkitektinum Will Cubbert sem er að halda uppá afmælið sitt þegar óvænt birtist Rick Steadman sem bjargaði Will í Viet Nam. Það kemur í ljós að Rick er gjörsamlega óþolandi og ekki húsum hæfur. Will til mikils ama virðist Rick vera fluttur inn til hans.


Unnar | 30. mars 2004
Leikstjóri ráðinn

Ármann glaður í bragði á heimili sínu
Ármann Guðmundsson hefur verið  valinn leikstjóri fyrir leikrit sumarsins 2004. Enn hefur ekki verið ákveðið hvaða leikrti verður tekið, en ákveðið hefur verið að gamanlekrit verður tekið á þessu sinni. Munu æfingar hefjast um miðjan maí og stemt er að frumsýningu 8. júlí.


Unnar | 6. mars 2004
Ný stjórn
Aðalfundur Leikfélagsins var haldinn þriðjudaginn 2. febrúar.
Farið var yfir liðið leikár og fjárhagur félagsins gerður kunnur.
Ný stjórn var kjörinn og er hún sem hér segir.


Unnar | 3. júní 2003
Æfingar hafnar á Bróðri minn Ljónshjarta

Föstudagin 31. maí síðastliðinn hófust æfingar á leikritinu "Bróðir minn Ljónshjarta" eftir Astrid Lindgren í leikstjórn Elfars Loga Hannessonar.


Unnar | 20. maí 2003
Brauðið

Leikfélagið Hallvardur súgandi sýndir einþáttungin / örleikinn Brauðið eftir Unnar Reynisson í leikstjórn Páls Gunnars Loftssonar  í Edinborgarhúsinu á Ísafirði miðvikudaginn 21. maí. Aðgangur að sýninguni er ókeypis. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti gegn vægu gjaldi.


Eiki | 30. apríl 2003
Samlestur fyrir "Bróðir minn Ljónshjarta".

Mynd úr bókinni "Bróðir minn Ljónshjarta".
Þá er komið að því sem allir eru búnir að vera að bíða eftir. Nú á sunnudag 4.maí nk. mun Elfar Logi Hannesson stjórna samlestri vegna leikritsins "Bróðir minn Ljónshjarta" og mun lesturinn hefjast í félagsheimili súgfirðinga stundvíslega kl.14:00.


Unnar | 16. apríl 2003
Félagið fær styrk frá menningarsjóði Sparisjóðs Bolungarvíkur.

Frá afhendingu. Mynd: Gunnar Hallsson
Leikfélagið Hallvarður súgandi fékk styrk frá Sparisjóði Bolungarvíkur sem afhentur var við hátíðlega athöfn í ráðhússalnum í Bolungarvík þriðjudaginn 15. apríl.
Hjálmar Þorvaldsson tók við styrknum fyrir hönd félagsins.
Leikfélagið vill þakka Sparisjóðnum fyrir veittan stuðning.


Unnar | 15. apríl 2003
Samlestur.

Mynd úr bókinni um bræðurna Ljónshjarta
Fyrirhugað er að hafa samlestur á leikritinu Bróðir minn Ljónshjarta sunnudaginn 4. Maí næstkomandi klukkan 14:00 . Allir sem eru áhugasamir um að taka þátt í sýningunni og undirbúningi hennar eru hvattir til að mæta með góða skapið í félagsheimilið. Þetta gildir bæði um þá sem vilja leika og vinna við sýninguna.


Unnar | 7. apríl 2003
Leikrit sumarsins 2003

Stjórn félagagsins fundaði núna um helgina og var þá rætt um hvaða leikrit ætti að taka. Eins og fram hefur komið hafði félagið hug á að taka barnaleikrit. Ákveðið var að setja upp leikrtirð Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren.


Unnar | 31. mars 2003
Leikstjóri fyrir sumarið 2003

Elfar Logi
Ráðinn hefur verið leikstjóri fyrir sumarið 2003. Leikstjóri verður Elfar Logi Hannesson frá Bíldudal sem búsettur er á Ísafirði.


Unnar | 9. janúar 2003
Aðalfundur Leikfélagsins Hallvarðs súganda.
Aðalfundur félagsins var haldinn þriðjudaginn 7. janúar síðastliðinn, þar sem ný stjórn var kosin. Frekar illa var mætt en þó náðist að mynda nýja stjórn.


Unnar | 29. júlí 2002
Ora með frétt um Leikfélagið Hallvarð súganda.

Draumur í dós
Í dag byrtist frétt á heimasíðu Ora  (http://www.ora.is) um sýninguna Draumur í dós sem félagið setti upp nú nýverið. Fréttina er að finna á eftirfarandi vefslóð : http://www.vefsmidjan.com/ora.is/index.php?sida=http://www.vefsmidjan.com/ora.is/frettir/long_frett.php?id=26


Unnar | 22. júní 2002
Vefurinn sudureyri.is (Suðureyrar vefurinn) kominn í loftið aftur

www.sudureyri.is
Nú í dag kom http://www.sudureyri.is aftur í loftið. Vefurinn hafði legið niðri í nokkurn tíma. Vefurinn er skemmtilegur og á vonandi eftir að blómstra og verða upphafssíða hjá mörgum í nánustu framtíð. Til hamingju Súgfirðingar.


Jóhanna | 2. júní 2002
Leikstjóri 2002

Unnar á yngri árum
Ráðinn hefur verið leikstjóri fyrir sumarið 2002 og mun það vera formaður okkar hann Unnar Þór Reynisson. Mun hann leikstýra verkinu "Draumur í Dós" eftir Elly Brewer og Sandy Togsvig.


Unnar | 13. mars 2002
Formaður félagsins var staddur í Reykjavík og brá sér á sýningu
Formaður félagsins var staddur í Reykjavík og brá sér á sýningu
Kvennaskólans í Reykjavík á leikritinu "Kynverur" í leikstjórn Stefáns Jónssonar.


Unnar | 14. febrúar 2002
Auður Birna leikur í MÍ
Auður Birna Guðnadóttir félagi okkar í Hallvarði er um þessar mundir að æfa hlutverk Meg í leiktinu Gísl eftir Brendan Behan í þýðingu Jónasar Árnasonar í Mentaskólanum á Ísafirði þar sem hún stundar nám.
Leikstjóri í verkinu er Þórhildur Þorleifsdóttir. Frumsýnt verður á Sólrisu Menntaskólans þann 3. Mars næstkomandi.


Unnar | 28. desember 2001
Ný stjórn
Félagið hélt aðalfund sinn þann 27 desember.
Að þessu sinni var kosin sjö manna stjórn og er stjórnin eftirfarandi.


Unnar | 20. desember 2001
Aðalfundur félagsins.
Boðað hefur verið til aðalfundar félagsins þann 27. desember í kaffisal félagsheimilisins klukkan 19:00. Boðið verðu uppá kaffi og meðlæti.


Jóhanna | 1. nóvember 2001
Stæltu stóðhestarnir frumsýnt hjá Litla leikklúbbnum á Ísafirði.

frá æfingartímabili
Undirrituð skellti sér á frumsýningu hjá Litla leikklúbbnum á Ísafirði, og skemmti mér alveg konunglega, allavega hló ég nánast allan tímann ásamt öðrum sýningargestum.


Unnar | 23. ágúst 2001
Merkilegt handrit

Sigurður Karl Kristjánsson leiklistarunnandi á Þingeyri færði Unnari Reynissyni, formanni Leikfélagsins Hallvarðs súganda, gamalt handrit sem hann fann í kassa ásamt gömlum bókum. Handritið sem um er að ræða er heitir "Blessunin hann afi sálugi" eftir Stanley Houghton og er frá árinu 1946.

Handritið er farið að láta á sjá en gæti orðið merkileg eign eftir nokkur ár.


Unnar | 17. júlí 2001
Sýningin féll í góðan jarðveg.
Uppfærsla leikfélagsins á verkinu "Betri er þjófur í húsi en snuðra á þræði" hefur fallið í mjög góðan jarðveg og hafa flestir verið mjög ánægðir með sýninguna. Umfjöllun um sýninguna má sjá á fréttavef BB á slóðinni: http://www.bb.is/frettir/fullfrett.php3?uid=4625


Jón Arnar | 22. maí 2001
Betri er þjófur í húsi en snuðra á þræði.

Dario Fo
Þá er búið að velja næsta leikrit sem sett verður á fjalirnar hjá Hallvarði súganda þetta leikár.  Er það leikritið ,,Betri er þjófur í húsi en snuðra á þræði" eftir Dario Fo.


Unnar | 9. maí 2001
Með vífið í lúkunum... Athugasemdir

Marta Nordal leikstjóri Með vífið í lúkunum
Varðandi frétt í ,,Fréttablaðinu" þriðjudaginn 08-05-01 um uppfærslu Borgarleikhússins á verkinu ,,Með vífið í lúkunum"  þá vill Leikfélagið Hallvarður súgandi koma eftirfarandi á framfæri.


Unnar | 8. maí 2001
Leikstjóri 2001

Ingrid Jónsdóttir
Ráðinn hefur verið leikstjóri fyrir uppfærslu Leikfélagsins Hallvarðs súganda þetta árið en það stendur til að frumsýna verkið 12. júlí.
Leikstjórinn sem fenginn hefur verið til verksins er Ingrid Jónsdóttir


Doddi | 1. janúar 1998
Ný heimasíða Hallvarðs súganda í smíðum

Súgandafjörður í allri sinni dýrð
Nú ætti að fara komsast eitthvað lag á síðuna okkar.
Svo er bara að sýna dugnað sinn í að uppfæra.




© Leikfélagið Hallvarður súgandi