Bloggið
04/18/08
Category: General
Posted by: doddi
09/29/07
Category: General
Posted by: doddi
Ég er búinn að vera alveg djöfullega lélegur við að blogga eftir að ég færði síðuna mína úr Loom kerfinu mínu yfir í CMSMS en þar sem ég á að vera að læra undir miðannapróf þessa stundina varð ég að sjálfsögðu að finna mér eitthvað allt annað að gera en að læra svo ég sótti alveg frábært myndaumsýslutól frá Google og tróð nokkrum myndum inn á vefinn í gegnum það.
08/17/07
Category: General
Posted by: doddi
Sungið: "Hún á ammælí dag, hún á ammælí dag, hún á AMMÆLÚN HEYA, hún á ammælí dag!!" :-D

Innilega til hamingju með afmælið ástaraldinsafinn minn!
Það er alveg stórkostlegt að halda upp á daginn þegar ástin í lífi mans fæddist. :-)
06/18/07
Category: General
Posted by: doddi
Já ég er víst alveg skuggalega lélegur að blogga, ég játa það alveg en skrítna staðreyndin er nú bara sú að ég á það til að vera hvað virkastur í því að blogga þegar eitthvað er að, þ.e.a.s. ef mér líður illa eða er pirraður yfir einhverju eða leiðist geðveikt mikið eða eitthvað í þá áttina. Þegar allt gengur mér í haginn hinsvegar þá er ég bara of upptekin við að lifa lífinu og hafa það kósí að bloggið situr á hakanu og seinasta eina og hálfa árið eða svo hefur bata allt gengið eins og í sögu.
04/26/07
Category: General
Posted by: doddi
Fyrir mistök þá fékk ég víst úthlutað símanúmeri sem var í eigu einhvers annars fyrirtækis svo ég var að fá nýtt GSM númer: 897-4079
04/25/07
Category: General
Posted by: doddi
Vegna gífulegrar ruslpóstsumferðar hefur bróðir minn neyðst til að loka fyrir póstþjónana sína sem m.a. sáu um póstinn fyrir hugarorar.com því magn spam-sins var farið að hafa veruleg áhryf á samskiptahraða netsins heima hjá honum. Ég þurfti því að finna einhvern annan til að hýsa póstinn minn og eftir smá fyrirspurning innanhúss í símanum var mér bennt á að Google byði upp á slíka þjónustu undir mekjum Google Apps.
04/03/07
Category: General
Posted by: doddi
Pirr! Ég var að djöflast í lúkkinu á vefnum og einhvernveginn vill núna frétta módúlan segja að síðan sé öll í ISOeihverandskotinn í staðin fyrir UTF-8 svo nú kemur allt í fokki ef einhver smellir á meira við frétt. Djö!
03/27/07
Category: General
Posted by: doddi
Það eru einhverjir svona væmnir þemadagar í gangi núna svo ég ákvað að í tilefni þess að ég og
Heya áttum eins árs afmæli 11. mars að skella hingað inn 13 mánaða gamalli dagbókarfærslu sem ég gróf upp fyrir nokkrum dögum. Þetta hammraði ég inn í dagbókina mína eftir að hafa þekkt Heyu í tvær vikur eða svo.
03/23/07
Category: General
Posted by: doddi
Núna nýverið frétti ég af því að "kunningi" minn hefði verið á djamminu sem svo oft áður og var enn sem áður að vinna í því að gera einhverja stúlkukind tilkippilega við sig með því að sturta í hana áfengi í hans boði (ætli þessi taktík virki einhverntíma?) sem er ekki frásögu færandi þannig séð nema fyrir þær sakir að hnátan sem hann reyndi svona örvæntingarfullt að gera hosur sínar grænar fyrir var KASÓLÉTT!
03/19/07
Category: General
Posted by: doddi
Tók líka próf til að tékka hvort ég er "Nerd, Geek eða Dork"...
03/19/07
Category: General
Posted by: doddi
Bara svona smá spaug! :-)
02/23/07
Category: General
Posted by: doddi
Úff... eftir að ég skipti um vefumsjónakerfi og lúkk á vefnum þá hætti ég alveg að blogga, þó ég hafi alveg haft tíma og nóg til að skrifa um. Spes! Það er eins og það eina sem hvatti mig til að blogga var að nota kerfið sem ég sjálfur bjó til!
12/18/06
Category: General
Posted by: doddi
Þetta er bloggað úr gsm símanum mínum
12/18/06
Category: General
Posted by: doddi
Aftur á sama árinu bið ég Guð og alla góða vætti að vaka yfir henni
Heyu minni og fjölskyldu hennar og létta undir með þeim og veita huggun á þessum erfiðu tímum.
12/13/06
Category: General
Posted by: doddi
Enn eitt heimskulega prófið... ekki að það séu ekki til meira "kúl" niðurstöður en mér finnst samt alveg geggjað fyndið að þetta eru teiknimyndir sem ég horfði alveg geggjað mikið á þegar ég var púki... ætli það hafi haft svona sterk áhrif á sálartetrið mitt að það sé enn mælanlegt? :)
12/07/06
Category: General
Posted by: doddi
Aftur lofaði ég ástinni minni að dúndra inn svona spurningalistadóti svo hún geti svarað svo hér er meira. Öðrum er líka guðvelkomið að fylla út ;-)
12/05/06
Category: General
Posted by: doddi
Elsku hjartans
Heya mín var að troða svona kjánalegum stelpulegum spurningalista á bloggið sitt sem mér bar að sjálfsögðu heilög skylda að svara svo ég ákvað að neyða hana til að svara sama lista með því að láta hann hér inn (svona fyrst ég er kominn með kommentakerfi). Ég er líka búinn að vera svo óduglegur að blogga að ég þarf að troða einhverju á netið svona til að þykjast allavega ...
11/01/06
Category: General
Posted by: doddi
Ég var að koma frá bankanum í dag þar sem ég var að ganga frá greiðsluþjónustu og almennum fjármálum næsta árs þar sem ég er nú fluttur út og farinn að búa og ég get ekki annað sagt en að það sé mjög miklu fargi af mér létt við að vera búinn að þessu og skopplaðist bara niður í vinnu að halda áfram þar hýr á brá, hamingjusamur og áhyggjulaus. EN...
10/25/06
Category: General
Posted by: doddi
"Snjókorn falla, á allt og alla, börnin leika, og skemmta sér...lalala". Rambaði út áðan og viti menn; það kyngdi niður snjó á okkur hjúin.
10/18/06
Category: General
Posted by: doddi
Ég var eitthvað að þvælast á
YouTube og sá link á klippu úr
Saw III. Ég man ekki alveg hvernig Saw II endaði en mig minnti að hún hefði ekki beint boðið upp á framhald svo ég ákvað að kíkja til að gá hvort þetta væri alvöru klippa eða bara eitthvað bull sem einhver amatör hefði gert í djóki.
10/17/06
Category: General
Posted by: doddi
Ég er búinn að vera að djöflast í þessu CMSMS dæmi í smá stund og henda inn auka módúlum og sneddíast og er eiginlega alveg á því að skipta alveg yfir.
10/13/06
Category: General
Posted by: admin
Ég er nokkuð sáttur við nýja kerfið og held að þetta verði bara nokkuð fínt þegar ég er búinn að læra almennilega á það.
10/13/06
Category: General
Posted by: admin
Ég er að setja upp nýtt CMS (vefumsjóna) kerfi og þar af leiðandi er allt í fokki og verður það væntanlega þangað til ég læri almennilega á það.